|
|
08.09.2006 19:18:23 / estheraj
Jæja, framundan er róleg helgi heima fyrir við lestur góðra bóka
(skólabóka að sjálfsögðu, hvað annað ?). Ætli verði ekki örlítið
dreypt á rauðvíninu líka þar sem ég vann jú rauðvínspottinn í
vinnunni og vínrekkinn því fullur af dýrindis víni (ágætis
tilbreyting það). Finnst þetta hálf öfugsnúið þar sem það er nú
venjulega ég sem er full en rekkinn tómur.......
múahahaha....... En svona að öllu gríni slepptu þá mun það
eflaust taka mig allnokkrar vikur að bragða á öllu þessu víni
(þrátt fyrir mikið rauðvínsdálæti). Þar sem ég er nú orðinn
hálfgerður “hænuhaus” hvað víndrykkju varðar og allt úthald löngu
fokið út í veður og vind. Ætli maður sé ekki bara kominn “úr
æfingu”. Annars var nú tekin smá “æfing” s.l. föstudagskvöld þegar
starfsfólk Industria fór í Heiðmörkina í M16 stríðsleik. Þar var
starfsfólki skipt í tvö lið og takmarkið var að “útrýma” hinu
liðinu. Það er skemmst frá því að segja að mitt lið tapaði öllum
þremur leikjunum þrátt fyrir að hafa innanborðs nokkra skapheita,
fyrrverandi hermenn úr Serbneska hernum. Þeir eru greinilega komnir
úr æfingu eftir nokkurra ára hlé kapparnir. Eftir herlegheitin í
Þórsmörkinni var síðan haldið í Laugar Spa þar sem dreypt var á
hvítvíni, farið í gufu og heita pottinn og keppst um hver hefði
mesta úthaldið í köldu tunnunni. Eftir Laugar var farið á Tapas
barinn og snætt og síðan á Thorvaldsen til að rifja upp
danssporin.
Afleggjarinn losnaði loksins við “stálið” úr munninum í vikunni,
eftir margar og rándýrar heimsóknir til tannréttingasérfræðingsins
síðast liðin ár. Í ljós kom þetta líka fallega, hvíta “Golgate
bros” og er engu líkara en hann hafi fengið að raða upp í sig
tönnunum sjálfur, þær eru svo beinar. Hrikalega sætur ! Ég kalla
þetta 500 þúsund króna brosið, sem er u.þ.b. kostnaðarverð ....
Hann er orðinn hinn mesti áhugamaður um tannhirðu og fer varla úr
húsi án þess að hafa með sér tannkrem, tannbursta og munnskol í
poka. Ætli hann bursti ekki í sér tennurnar ca 14 sinnum á dag.
Hann gerir sér meira að segja ferðir til að ná sér í sérstök
tannkrem við sitt hæfi ef honum líkar ekki tegundin sem í boði er á
heimilinu.
Við heimilismeðlimir duttum síðan í Supernova stemmingu í
vikunni og haldin var “Magnavaka” aðfaranótt miðvikudags (þar sem
við vorum jú bæði í fríi á miðvikudag). Hálf þreytt eftir vökuna
kvöldið áður hélt ég síðan í saumaklúbb á miðvikudagskvöldið þar
sem uppi varð fótur og fit þegar nágrannar höfðu kallað á Vöku til
að draga burtu bíla saumaklúbbsmeðlima sem lagt höfðu í merkt stæði
íbúa. Halla mætti að sjálfsögðu með stæl á mótorhjólinu sínu (en
það er nýjast áhugamálið hjá þeim skötuhjúum) og lagði upp á stétt
þannig að ekki lenti hún í vandræðum. Ég lenti að sjálfsögðu ekki í
vandræðum heldur þar sem ég “húkkaði” far hjá Siggu stórfrænku, því
auðvitað var bifreiðin mín í láni (hjá afleggjaranum, hvað annað).
Samkoman heppnaðist að öllu leyti afar vel að undanskildum þessum
“vökuvandræðum” (sem við höfðum nú samt pínulítið gaman af og allir
sluppu vel frá). Enda ekki við öðru að búast þegar saman eru komnar
9 lífsglaðar, Siglfirskar konur með húmor fyrir lífinu og
tilverunni.
Skróp í skólanum voru 2 þessa vikuna (úppss...) og skrifast
annað á vinnuna og hitt á eitthvað allt annað Annars þarf
ég nú að taka mig aðeins á í náminu og heilsa aftur upp á
forsetalistann sem fékk frí frá mér á sumarönn. En eins og einhver
fræg hljómsveit söng “Two out of three ain’t bad” (Meatloaf)

Með óskum um góða helgi til ykkar allra........... farin ....

»
30.08.2006 23:32:55 / estheraj
Jæja, maí, júní, júlí og ágúst
liðnir frá síðustu skrifum........... afar léleg frammistaða
það........Ekki að það hafi svo lítið á daga okkar
drifið að ritefni hafi skort (heldur þvert á móti). Önnur
málefni hafa einfaldlega haft forgang 
Þessir mánuðir hafa farið vel með
okkur ef undanskilin eru vonbrigðin yfir að hafa ekki fengið ferð í
sólina á þeim tíma sem hentaði. En eins og flestir vita fengu
Íslendingar æðiskast í júlímánuði vegna dapurs veðurfars og ákváðu
allir sem einn að panta sér sólarlandaferð. Þetta gerði það að
verkum að færri komust að en vildu. En við lentum einmitt í hópnum
“vildu, en komust ekki að” 
Fjárfest var í nýrri bifreið í stað
þeirrar sem mér tókst að eyðileggja með eftirminnilegum hætti og
afleggjarinn fékk ökuleyfið. Hann er því orðinn fátíður “gestur” á
heimilinu þar sem hann er önnum kafinn við eyðingu malbiksins á
höfuðborgarsvæðinu.
Hann hefur alveg ótrúlegt
hugmyndaflug þegar kemur að því að finna ástæður fyrir hinum ýmsu
skreppitúrum og fer varla í 10-11 án þess að fara á bílnum (sem er
btw við hliðina á okkur).....Það er sem sagt búið að aka bílnum heila
3000 km á einum og hálfum mánuði. Spurning um að koma upp einhverju
kvótakerfi á þennan akstur hjá honum eða rukka um kílómetragjald
...........
Afleggjarinn fór í stutt frí til
fjölskyldunnar í Noregi fyrri part sumars og komu þau síðan hingað
heim í júlí, með uppáhaldsfrænkurnar. Algjörir prakkarar og eru þær
sko alveg færar um að bræða hvern mann upp úr skónum. Rakel og
Kristján eru greinilega ekki alveg komin af unglingaskeiðinu og eru
enn illa haldin af “fearless syndrome”, sem maður hafði í ríkum
mæli hér áður og skelltu sér sem sagt í fallhlífarstökk á
dögunum. Ótrúleg !!
Merkilegt hvernig við hræðumst oft
hluti með aldrinum sem við áður töldum ekki svo ógnvekjandi.
Einhver ástæða er eflaust fyrir því að algengara er að eldra fólk
sé haldið einhverri tegund “fobiu” eða hræðslu. Hvað er eiginlega
málið, ætli þetta hafi eitthvað með kæruleysi að gera ? Spurning
hvort Kári getur fundið eitthvað út úr þessu ? Nei, hann er
sennilega enn upptekinn við að leita að flughræðslugeninu eftir að
hafa lent í 6 tíma flugferð með undirritaðri fyrir nokkrum árum
síðan Sem hefur jú verið staðin að því að stökkva
nánast yfir heilu sætaraðirnar til að sækja í hughreystingu
ferðafélaga, í ókyrrlátum flugferðum. Annars rakst ég á
athyglisverðar upplýsingar þegar ég vann að rannsóknarskýrslu
um flughræðslu í skólanum. Skv. könnunum er flughrætt fólk
oft haldið einhverskonar fullkomnunaráráttu, er vel gefið og
hefur vegnað vel í lífinu. Þetta er gjarnan fólk sem hefur
ríka þörf fyrir að skilja alla hluti og hafa stjórn á
aðstæðum en á erfitt með að treysta öðrum jafnvel.
Hmmm....., af
þessu mætti sem sagt draga þá ályktun að ég sé haldin
fullkomnunaráráttu, sé vel gefin, vegni vel í lífinu, sé
“controlfrík” og eigi erfitt með að treysta öðrum........ Tja,
.... spurning ??
Skötuhjúin í Gerðhömrum skelltu sér í
heimsókn til vinafólks í USA í ágúst og lentu í þvílíkri
hitabylgju að varla var úti verandi. Þau þráuðust auðvitað við eins
og sannir Íslendingar, staðráðin í að ná sér í smá brúnku. Á
meðan innfæddir héldu sig inni við spókuðu
Íslendingarnir sig í sólinni alveg steinhissa á því hvað fólkið í
hverfinu var heimakært og ófélagslynt eitthvað 
Þetta var annars vel heppnuð ferð hjá
þeim með viðkomu í Washington, New Jersey ofl. stöðum.
Jæja, ætli sé ekki rétt að fara að
hvíla sellurnar fyrir morgundaginn. Langur dagur
framundan............. þar til næst.............
»
20.04.2006 19:14:41 / estheraj
Jæja, tími til kominn að setja nokkrar línur hér inn. Penninn
hefur verið alveg bleklaus í þó nokkurn tíma. Páskafríið nýliðið,
önnin búin hjá mér, framundan próf hjá afleggjaranum og næsta önn
bíður mín þann 25. apríl.
Fórum að sjálfsögðu við stelpurnar úr skólanum út að borða eftir
síðasta prófið, þriðjudaginn fyrir Páska. Okkur fannst alveg
tilvalið að gefa sellunum frí, leyfa þeim að velta sér upp úr
einhverju léttmeti og kitla hláturtaugarnar, eftir að hafa nánast
brætt úr þeim í prófundirbúningnum.Undirrituð pantaði borð fyrir
okkur á Apótekinu þar sem við snæddum saman og kjöftuðum fram til
lokunar eða tæplega eitt. Fékk mér þennan líka frábæra túnfisk og
að sjálfsögðu rauðvín með eins og lög gera ráð fyrir. Mjög
skemmtilegt kvöld enda frábær hópur af 9 skemmtilegum konum þar á
ferð :-)
Miðvikudaginn fyrir Páska var síðan kveðjuhóf í vinnunni fyrir
starfsmenn sem voru að kveðja Industria. Mjög vel heppnað og endaði
það með því að undirrituð skundaði yfir á Hressó og síðan Vínbarinn
með nokkrum vel heppnuðum einstaklingum af hinu kyninu (þar sem ég
var jú eina konan í hópnum), enda við ekki nema tvær hjá Industria
og hin fjarri góðu gamni.
Páskafríið fór síðan í eintóm rólegheit heima fyrir hjá mér og
afleggjaranum.
Hann eyddi mestum tíma fyrir framan tölvuna þar sem hann ákvað að
taka þátt í einhverri keppni á netinu um besta fótboltamyndbandið.
Hann eyddi sem sagt Páskunum í að setja saman myndband með
einhverjum fjölda myndbrota úr fótboltanum.
Snérist um að velja sér einhvern ákveðinn leikmann og setja saman
stutt myndband um hann með viðeigandi tónlist, effectum og öðru
tilheyrandi. Afar vel heppnað hjá honum að mínu mati. Honum er
greinilega ýmislegt til lista lagt og heldur áfram að koma mér
stöðugt á óvart. Páskafríið var einnig notað í æfingaakstursferðir
fyrir hann, þar sem styttist í 17 ára afmælið og bílprófið.
Við mæðginin ákváðum síðan að snæða saman tvö á Páskadag og var
matseðillinn settur saman eftir óskum afleggjarans. Lærisneiðar í
raspi og meðlæti. Ég veit,.... kannski ekki týpískur
Páskamatseðill, en þetta var jú óskalistinn.
Amman í Frostafoldinu hélt á æskuslóðir um Páskana (til
Siglufjarðar) og stóð nú til að við mæðginin myndum skella okkur
með en ákváðum á endanum að vera heima í rólegheitum. Þar var víst
frábært skíðafæri og hver veit nema ég hefði kannski náð að bæta
fyrra lyftumet á snjóbrettinu.En ætli metið um síðustu Páska hafi
ekki verið ca 10-15 metrar upp eftir, eftir ansi brösuglegar
tilraunir í ca 3 klukkutíma. Algjör brettasnillingur ......... eða
þannig 
Af öðrum fjölskyldumeðlimum er það að frétta að skötuhjúin í
Gerðhömrum (afi og “stjúp”amma) héldu til Prag í morgun. Þar er
víst algjör sumarblíða og sátu þau skötuhjú úti að borða í 20 stiga
hita þar, rétt áðan. Við mæðgin fengum afnot af bifreið
húsmóðurinnar á meðan til að rúnta á bílasölur um helgina.
Faðir afleggjarans og frú komu í heimsókn til okkar í gærkvöldi
ásamt litlu skottunni sinni henni Freyju. En þau höfðu gert sér
bæjarferð þar sem hann var á leið til Glasgow með vinnufélögum í
morgun og hún ætlar að eyða helginni á höfuðborgarsvæðinu á
meðan.
Ótrúlegt en satt þá tókst mér að selja “handónýta” bílinn rétt
fyrir Páska á heilar 85 þúsund krónur eftir fjölda símhringinga á
hinar ýmsu jeppapartasölur. Þannig að ef ykkur vantar að láta selja
fyrir ykkur einhverja handónýta hluti þá vitiði hvert þið eigið að
leita.
Þar til næst................. Adios
»
03.04.2006 16:22:41 / estheraj
Jæja, ekki gengur vel að bæta úr slakri frammistöðu við skrif
inn á síðuna. Af okkur íþróttafréttamanninum er annars allt
sæmilegt að frétta. Afleggjarinn hefur komist í nánari kynni við
heimilisstörf en hann hefði nokkurn tímann kosið þar sem námið og
fróðleiksfíkn móðurinnar hefur tekið yfirhöndina og hann því þurft
að hugsa um heimilið. Svei mér ef hann hefur ekki haft gott af
þessu námsbrölti mínu. Hann hefur fyrir vikið öðlast algjöran
skilning á þeim pirringi sem ég hef stundum viðhaft í hans garð
fyrir slæma umgengni. Í stað þess að ég sé sífellt tuðandi í honum
fyrir að ganga ekki nógu vel um hefur dæmið snúist við. En ég á nú
inni nokkuð mörg ár hjá honum ................ er það ekki ?
Þar sem lokapróf í skólanum eru framundan nú í vikunni hefur
síðast liðin vika verið hálfgerð maraþonlærdómsvika. Á
afrekalistanum er það einnig að mér tókst að eyðileggja bifreiðina
um helgina. Fór sem sagt alveg í klessu og ekki einu sinni hægt að
aka henni á brott. En það þýðir s.s. lítið að pirrast yfir því,
breytir ekki því sem gerst hefur. Sennilega bara heppin að hafa
verið í belti og sleppa ósködduð frá þessu öllu. Bíllinn er jú bara
dauður hlutur. Verst hvað þessi dauði hlutur kostaði mikla peninga
............. Hah........ og hann ekki einu sinni í kaskó. Þar fuku
nú nokkrir hundraðþúsundkallar.......
Ætli athyglin hafi ekki verið fokin út í veður og vind þar sem
ég var á leiðinni heim úr 4ra tíma tölfræðitíma. Það liggur sem
sagt fyrir að huga að bílakaupum því ekki getur maður nú búið alveg
lengst uppi á hálendinu (Grafarvoginum) án þess að vera á bíl.
.......... og ef þið vitið um einhvern sem vill kaupa ALVEG ónýtan
Dihatsu Terios, helst á okurverði þá endilega látið mig vita.
Jæja, kveð í bili. Best að snúa sér að bókunum og fara að huga
að því hvernig ég kemst í aukatímann í kvöld. Ætli mér standi til
boða svona afsláttarstrætókort fyrir námsmenn. Nei,
sennileg orðin aðeins of gömul, eru víst bara fyrir 16-18
ára.
“Adios”
»
18.03.2006 15:55:34 / estheraj
Laugardagur heima í rólegheitum og alveg tilvalið að skella nokkrum
línum hér inn. Unglingurinn farinn með vinunum á Subway og svo í
bæinn. Það er alveg ótrúlegt að fylgjast með því hvernig börnin
manns verða bara allt í einu fullorðin. Það er engu líkara en þau
vakni bara upp einn morguninn 10 árum eldri en daginn áður. Eða
kannski fattar maður bara allt í einu sjálfur hversu fullorðin þau
eru orðin. Af afleggjaranum er það að frétta að hann stendur sig
eins og hetja í skólanum og virðist blómstra þessa dagana. Mér til
mikillar furðu komst ég að því í gær að hann er einnig orðinn
hálfgerður íþróttafréttamaður. Forsvarsmenn Liverpoolklúbbsins á
Íslandi höfðu víst samband við hann og báðu hann að skrifa
greinar/umfjallanir reglulega inn á síðuna hjá þeim. Kváðust hafa
tekið eftir því að hann væri hinn “besti penni”. Hann er greinilega
hinn hógværasti og hefur ekkert verið að auglýsa þetta. Hann sýndi
mér skrifin í gær og ég uppgötvaði alveg nýja hlið á honum. Það var
einmitt þá sem ég stóð mig að því að hugsa, “bíddu er litla barnið
mitt orðið svona fullorðið”. Hann er sem sagt með umfjöllun um lið
og leikmenn Liverpool og Newcastle vegna væntanlegrar viðureignar
þeirra á morgun. Hann fjallar um gengi liðanna fram til þessa í
deildinni, hvernig fyrri viðureignir þeirra hafa verið, hvernig
hinir ýmsu leikmenn hafa staðið sig, hvaða gagnrýni þjálfarar og
leikmenn hafa fengið, hverjir eru meiddir og hvernig búast megi við
að upphafslið beggja liða verði. Með þessu fylgja svo að sjálfsögðu
fullt af myndum af leikmönnum og öðru þessu tengdu. Hann er
náttúrulega eins og alfræðiorðabók þegar kemur að fótbolta og
leikmönnum þannig að honum ferst þetta ákaflega vel úr hendi.
Ferfalt húrra fyrir þér Hafþór !!
Af mér sjálfri er það að frétta að vikuleg Idol samkoma í
Gerðhömrunum var sótt í gærkvöldi. En það er orðinn fastur liður að
við mæðginin snæðum með þeim skötuhjúum og öðru heimilisfólki á
föstudagskvöldum og síðan er horft á Idolið.
Það er einnig orðin hefð að hafa hollustuna í fyrirrúmi og
er venjulega á boðstólnum einhver orkumikil grænmetissúpa,
kjúklingasalat eða önnur álíka
hollusta.
Selma frænka og litla fimleikadrottningin hennar hún Viktoría voru
einnig með okkur í gærkvöldi. Sem sagt hin besta skemmtun.
Ég tók mér frí frá vinnu á föstudag til að leggja lokahönd á
verkefni tengdu náminu, sem skila þurfti þann dag. En þetta fag sem
upphaflega kveikti ekki mikinn áhuga hjá mér hefur heldur betur
komið á óvart og hef ég orðið hina mestu ánægju af verkefnavinnu
því tengdu. Í þessari lotu var m.a. verið að spá í ávöxtun
skuldabréfa og hlutabréfa, reikna út núvirði greiðslustreymis bréfa
og kaupverð m.v.ávöxtunarkröfu, útreikninga vænts frjáls
fjárflæðis, verðmat fyrirtækja út frá væntu frjálsu fjárflæði og
sögulegri ávöxtun þeirra vs ávöxtun markaðar og WACC fyrirtækja.
Hljómar kannski ekki spennandi en “beleive me it is” !
Fékk einnig einkunn úr miðannarprófinu í tölfræði í vikunni. En
ég kom sjálfri mér heldur betur á óvart. Var sem sagt með aðra
hæstu einkunn í faginu af yfir 100 nemendum eða tæplega níu. En
prófið kom verulega illa út yfir höfuð og var meðaleinkunn ekki
nema 5,4 og staðalfrávik 1,7 sem segir manni að 68% nemenda voru
með einkunn á bilinu 3,7 – 7,1 (vá, hvað ég er orðin klár í þessu
með staðalfrávikin, hah...). Í kjölfar þessa góða árangurs hlaut ég
síðan það skemmtilega viðurnefni “Undrína” á meðal
skólafélaga. Það þótti víst viðeigandi þar
sem stærðfræðigúrúinn á síðustu önn hlaut viðurnefnið
"Undri".........(skárra en Nerd amk).... 
Well, læt þetta duga í bili. Vona að þið eigið góða helgi
!
»
06.03.2006 22:10:36 / estheraj
Lítil afköst
hvað skrif varðar upp á síðkastið. Já og eiginlega hvað flest
annað varðar en vinnu og nám. Námið hefur tekið sinn tíma
sökum miðannarprófa og heimaverkefna bæði hjá mér og
afleggjaranum. Þannig að á meðan aðrir hafa haft það notalegt
í sófanum og horft á Batchelor, Boston Legal eða annað
afþreyingarefni, höfum við setið yfir námsbókum. Prófum er
sem betur fer að ljúka nú í vikunni. Þessarar helgar mun
verða mynnst sem “tölfræðimaraþonhelgarinnar miklu”
Aukatími á
laugardag frá 13 – 15 og sunnudag frá 11 – 16. Ég var sko
þannig búin að bræða úr sellunum eftir þessa 5 klukkutíma á
sunnudag að ég hafði áhyggjur af því að ég myndi ekki taka
eftir rauðu ljósi á leiðinni heim. Ég hefði ekki einu sinni
getað lagt saman tvo + tvo, nema fá út 5. Er heim var komið
var stefnan sett rakleiðis á sófann og sellurnar hvíldar í
tvo tíma.
Til allrar lukku eins og áður, tekur
stórfjölskyldan ríkan þátt í þessu námsbrölti með því að bjóða
okkur reglulega í mat, þegar mikið gengur á. Og ef sérstaklega
mikið er að gera þá er einfaldlega veitt heimsendingarþjónusta.
Afbragðs fjölskylda það !
Enda hefði ég sennilega klúðrað hvaða
uppskrift sem er eða amk notað einhverja ranga “formúlu” m.v.
hugarástandið.......... 
Afleggjarinn og vinirnir fóru seinni
part föstudags í Go Kart inn í Njarðvík og út að borða á eftir.
Ótrúlegt hvað “litla barnið” manns er orðið stórt. Er farinn að
flækjast með vinunum á bíl inn í Njarðvík. Og mér sem finnst svo
stutt síðan ég var að fylgja honum á leikskólann í 1.
skiptið.
Tíminn líður................ Sem ætti
að mynna mann á að nota hvern dag vel............. og njóta líðandi
stundar. Eða
eins og einhver sagði: “Dansaðu alltaf eins og enginn sé að horfa”,
“Syngdu eins og enginn sé að hlusta” og “Elskaðu eins og þú hafir
aldrei verið særður”. Algjör gullkorn ! Vel við hæfi að enda þetta með þessum
orðum.
Dansinn, söngurinn og allt hitt
bíður................. 
»
08.02.2006 22:33:33 / estheraj
Kominn miðvikudagur og skólasókn þessarar viku lokið. Nú
styttist óðum í miðannarpróf, nálgast óðfluga ....... eins og óð
fluga (líkt og einhver sagði), þannig að það er eins gott að spýta
í lófana og hleypa smá ofvirkni í sellurnar. Mikið væri nú gott ef
hægt væri að meðhöndla kollinn á sér á sama hátt og tölvu. Ef
þjappa mætti þeim gögnum sem fyrir eru og mynda meira rými fyrir
ný.......... Hah...........
Kannski maður verði bara að “fleygja út” gömlum úreltum gögnum
?
Heyrði ansi skemmtilega sögu í skólanum af prófi í heimsspeki.
Ein spurning prófsins var sem sagt svohljóðandi; “Er þetta
spurning” ? ......... Hmm, hvað yrði nú rétt svar við þessu ?
En það var jú einn nemandi sem fékk fullt hús stiga með því að
svara; “Ef þetta er spurning, þá er þetta svar” ! Alveg brilliant,
finnst ykkur ekki ?
Maður ætti kannski að taka einn heimsspekikúrs eða svo ?, virkar
skemmtilegt.........
Þar sem ég lifi nú og hrærist í líkindareikningi þessa dagana
gæti ég t.d. reiknað út líkurnar á því að mér myndi þykja
hann skemmtilegur. Ef A=fer í heimsspekikúrs og B=þykir hann
skemmtilegur, þá P(B|A)=P(A^B)*P(A).... skemmtilegar þessar
líkindareikningsformúlur....... Ef ykkur vantar að vita
líkurnar á að þið vinnið í lottóinu eða hvað þið þurfið að
fjárfesta í mörgum samsetningum talnaraða til að tryggja ykkur 5
rétta, þá bara hafið þið samband (tek einhverja smá þóknun
fyrir það). En ykkur til fróðleiks þá þyrftuð þið að eyða í kringum
21 milljónum króna í mismunandi samsetningar talnaraða til að
tryggja 5 rétta. Sniðugt ekki satt ? Fullt af alls konar ónothæfum
fróðleik sem maður lærir á þessu námsbrölti sínu.
Nýliðin helgi var svona sambland af rólegheitum og
samkvæmislífi. Fertugsafmæli á laugardagskvöldið og rólegheit heima
á föstudagskvöldið. Annars sátum við mæðginin nú og kjöftuðum frá
okkur allt vit til klukkan að ganga fjögur aðfararnótt laugardags
og sváfum því aðeins fram eftir á laugardeginum. Deginum var síðan
eytt í líkindareikning og að sjóða saman ræðu fyrir fertugsafmælið
um kvöldið. Ræðan var flutt og vakti mikla kátínu (eflaust af því
hún innihélt engar líkindareikningsformúlur né tölfræðilegar
upplýsingar).....
Af afleggjaranum er það að frétta að hann er búinn að vera
veikur heima það sem af er vikunnar. En þessir dagar eru nú einmitt
lengstir hjá mér og ég yfirleitt ekki komin heim úr skólanum fyrr
en um níu. Hann er svo heppinn að eiga alveg ótrúlega sanna vini
sem láta sér detta í hug að mæta á svæðið með pizzu handa honum.
Alveg merkilegt ! Og ef það eru ekki vinirnir þá er amman mætt á
svæðið með heitan mat. Það er sem sagt séð um að stjanað við hann
þó móðirin dvelji langtímum í höfuðstöðvum HR.
Jæja, best að beina huganum að öðrum og þarfari hlutum......
»
02.02.2006 21:33:41 / estheraj
Engin skrif upp á síðkastið. Verið eitthvað löt við þetta. Hvað
er nú helst, hmm látum okkur nú sjá. Jú, auðvitað. Primadonnan mun
taka á móti viðurkenningu frá HR á morgun fyrir framúrskarandi
námsárangur á liðinni önn. Komst sem sagt á forsetalista skólans og
verð styrkt af Straumi-Burðarás þessa önnina. Ekki amalegt
það Alveg ótrúlegt að “sellurnar” hafi skilað þessum
árangri m.v. allt svefnleysið. Af afleggjaranum er það að frétta að
hann hefur ekki fengið undir 8 í einu einasta prófi í skólanum það
sem af er komið annar og er með 100% mætingahlutfall. Húrra fyrir
honum !!
Erum búin að koma okkur upp þessari fínu námsaðstöðu við
nýja borðstofuborðið okkar og munum sitja þar saman með andlitin
ofan í skólabókum út þessa önn................ tja eða öllu heldur
næstu annir.
Viðskiptalögfræðitíminn í vikunni hjá Helga húmorista
jafnskemmtilegur og ávallt. Talið barst að réttindum einstæðra
mæðra og fylltust einhverjir kvennemendur, sem greinilega tilheyrðu
þeim hópi miklum áhuga og báðu um frekari umfjöllun um málið.
Testesterónríkari einstaklingi datt þá í hug að spyrja hvort hann
mætti bara fara í pásu á meðan og auðvitað lá ekki á svörum hjá
Helga. Hann skyldi sko aldeilis ekki fara í pásu því miklar líkur
væru á að hann myndi kynnst einni einstæðri í framtíðinni, og því
skyldi hann sko hlusta vel. Í pásunni, í matsalnum settist Helgi
hjá okkur stelpunum og einhverri varð á að minnast á bloggsíðuna
mína. Hva bloggarðu ? .... spurði Helgi.... og af hverju.....? og
hann hafði greinilega þá skoðun að flestir sem blogguðu væru alltaf
að skrifa eitthvað á bloggsíðuna sína sem þeir þyrðu ekki að
segja........... að sjálfsögðu þurfti ég að leiðrétta þann
misskilning...........annars er best að segja ekkert slæmt um hann
Helga ef hann skyldi nú villast inn á síðuna ............. æ, þið
vitið einkunnin er í húfi Jóhanna gerðist nú svo frökk að
segja honum að hann liti ekkert sérstaklega vel út þennan dag, væri
eitthvað þreytulegur (þar lækkaði hún nú um alveg tvo heila).......
að sjálfsögðu sagði ég honum að hlusta ekki á hana, hann liti bara
mjög vel út (hvað annað).......... again, einkunnin var í
húfi 
Well, læt þetta duga í bili ...........
»
24.01.2006 22:58:25 / estheraj
Þriðjudagur og dágóðum tíma undanfarinn sólarhring verið varið í
hlátur og fíflagang. Saumaklúbbur í gær, mikið hlegið og ég held ég
hafi hreinlega sofnað með opinn munninn því kjálkarnir voru ekki
alveg komnir saman. Snæddur var “Pestó” kjúklingur og honum rennt
niður með ljúffengu rauðvíni, ekki slæmt.
Í gær, á leið í skólann kom ég við með brauð handa öndunum. Sem
btw tilheyra nú hópi fyrrverandi vina. Eftir þetta skipti er ég
sannfærð um þær hafi komist að þessu með dálæti mitt á
appelsínuönd, því þær átu næstum af mér höndina. Ef þessar ferðir
mínar þangað eiga að halda áfram, þarf ég augljóslega að verða mér
úti um viðeigandi varnir. Þannig að ef eitthvert ykkar veit hvar
hægt er að nálgast 17. aldar brynvörð skilmingarklæði eða hafið
aðrar tillögur, þá endilega látið mig vita........
Tíminn í skólanum hjá manninum með svæfandi röddina gekk nú bara
vel og geispaði ég ekki nema ca 14 sinnum. Það hefur kannski verið
sársaukinn í hálfétnum fingrunum sem hélt mér vakandi :-o
Tíminn í dag var hins vegar hinn líflegasti og mikið hlegið. En
kennarinn er nú alveg með fyndnari mönnum. Hver segir svo að
lögfræðingar hafi ekki húmor ? Hann nær einhvern veginn að gera hin
alvarlegustu málefni alveg drepfyndin.
Hann sagði okkur frá einum færasta lögfræðingi sem hann vissi
um, sá þyrfti ekki nema rétt að líta yfir samninga til að
koma STRAX auga á hvort þeir væru munnlegir eða skriflegir

Í tengslum við umfjöllun hans um stjórnsýslulög tjáði hann okkur
að ef við ættum eiginmenn sem væru ALLTAF í veiðiferðum með vinunum
þá væri það tam gróft brot á “meðalhófsreglunni” að banna slíkar
ferðir alfarið og að við gætum hreinlega átt yfir höfði okkar
málssókn fyrir vikið.
Guðfinna rektor kom einnig og kynnti okkur stefnu, gildi,
starfsreglur og ímynd HR. Þessi kona hefur sennilega þá mestu
jákvæðu orku, útgeislun og sannfæringarkraft sem ég hef kynnst.
Ótrúlega aðlaðandi karakter.
»
22.01.2006 16:34:00 / estheraj
Róleg helgi senn á enda. Ein heima
á sunnudegi þar sem “rútína” afleggjarans á sunnudögum er
fótboltaæfing og
enski boltinn með strákunum. Annars bíður okkar
stærðfræðiverkefni þegar hann kemur heim. Afleggjarinn fór í
Loftkastalann á ræðukeppni framhaldsskólanna á föstudagskvöldið
með strákunum og móðirin heim til ömmu “púlara” í mat ásamt
fleirum þar sem horft var á Idol og síðan spilað fram eftir
kvöldi. Ég veit ekki hvort allar mæður eru eins og ég eða hvort
það má bara kalla mig “móðursjúka” en ég hafði nú töluverðar
áhyggjur af honum í miðbænum á föstudagskvöldi. Amk gat ég ekki
alveg slakað á fyrr en hann hafði skilað sér heim um eittleytið.
Þar sem hann var nú ekki með síma sjálfur vildi ég ómögulega
gera honum þá skömm að hringja í einhvern vina hans til að
athuga með hann. Æ, þið vitið hvernig þessir unglingar
eru......... Það hefði eflaust þótt með eindæmum hallærislegt ef
einhver vina hans hefði kallað yfir hópinn ........... “Hafþór,
mamma þín er í símanum.......” úpps.........
En ég gleymi einmitt seint því
augnabliki þegar ég var á sama aldri og hann, stödd við Austurvöll
á laugardagskvöldi, á leiðinni heim í Vesturbæinn ásamt hóp af
unglingum þegar mamma birtist allt í einu ásamt vinkonu sinni. En
mömmur eru stundum ekki alveg velkomnar á svona “momentum”. Þetta
var nú einnig kvöldið sem ég kynntist fyrsta kærastanum mínum og
vildi svo illa til að hann var með í för. Þar að auki var hún á
þeirri asnalegustu bifreið sem ég hafði augum litið á þessum tíma.
Gulum Trabant sem fór sko ekki hljóðlega um göturnar eins og
kannski flestir muna. Það er skemmst frá því að segja að hún þurfti
endilega að flauta, skrúfa niður rúðuna og kalla á mig......... Þið
getið rétt ímyndað ykkur hvort mér var eitthvað skemmt ........ ó
nei. Ég reyndi í fyrstu að láta sem ég tæki ekki eftir henni og
hélt áfram en það gerði auðvitað bara illt vera því þá glumdi
náttúrulega aftur í flautunni og hún kallaði enn hærra........
þannig að þeir sem ekki höfðu tekið eftir henni í fyrra skiptið
voru nú komnir með alla athyglina á mig og konuna í þessari
asnalegu, háværu, gulu bifreið........ og auðvitað varð ég á
endanum að viðurkenna tengsl mín við þennan ófögnuð........ Þetta
endaði þó sem betur fer allt farsællega og ég hélt förinni áfram í
Vesturbæinn með hópnum........ og missti ekki af fyrsta
kærastanum
J
Laugardeginum var eytt heima við í
rólegheitum. Þetta hefðbundna. Lestur og heimilisstörf. Matreiddur
var uppáhaldsréttur afleggjarans “kjúklingur í kókosmjólk og
karrýi” ásamt tilheyrandi. Vinir afleggjarans komu síðan í heimsókn
og eyddu bróðurpartinum af kvöldinu í herberginu hans á meðan
móðirin eyddi kvöldinu í sófanum fyrir framan sjónvarpið,
"tárfellandi” yfir einhverri dramatískri bíómynd........
J
Ótrúlegt hvað maður
getur lifað sig inn í þessar bíómyndir.......... Hah.
Langur dagur framundan á morgun,
vinnan, skólinn og svo saumaklúbbur ..............
Well, læt þetta duga í bili, vona að
þið hafið átt góða helgi !
»
16.01.2006 21:22:12 / estheraj
Jæja nú sit ég eins og unglingarnir, skrifa á bloggið og hlusta
á bítlatónlist í tölvunni. En afleggjarinn tók sig til í gærkvöldi
og setti inn forrit svo ég gæti sótt mína eigin tónlist á netið.
Ætli hann hafi ekki orðið leiður á stöðugum beiðnum um óskalög og
viljað vera í friði með sitt ......................
Enginn fyrirlestur í skólanum í dag vegna veikinda :-(
......... hrikalegt. Ég sem var búin að undirbúa mig með öllum
tiltækum ráðum fyrir fyrirlesturinn hjá Sigurði Atla (þessum með
svæfandi röddina) með m.a. óhóflegri kaffidrykkju og sætindum
............ Svo nú verð ég bara að nýta alla þessa orku í eitthvað
annað.
Afleggjarinn og Trausti vinur hans voru að kveðja. Á leiðinni í
Safamýrina að keppa við Framarana. Er spilaður fótbolti í öllum
veðrum, ég bara spyr ? Hann fór í fyrsta skyndiprófið sitt í
skólanum í dag. Bókmenntir. Fékk að vita áður en hann fór heim að
hann hefði verið næst hæstur í bekknum, með níu. Vona að hann haldi
áfram á sömu braut. Hann var nú óttalega duglegur að læra um
helgina þessi elska Ég hef þá kannski náð að smita
hann aðeins af þessari fróðleiksfíkn minni s.l. mánuði. En hann
hefur nú ekki verið svo lítið stoltur af velgengni móður sinnar í
skólanum og greinilega verið hinn duglegasti við að segja það öllum
sem vilja heyra. Ég held að honum finnist ég vera meðal klárustu
kvenna sem hann þekkir :-) Og þá verður maður náttúrulega að
reyna að standa undir væntingum.................
Var að spjalla við Rakel systir í Noregi á “Skypinu”. Hún vill
endilega að ég sláist í för með þeim og fleira fólki á skíði um
Páskana. Það er nú ekki laust við að allur þessi snjór kyndi undir
skíðahugleiðingar hjá manni. Hún sem sagt kvartar sáran undan því
að ég komi aldrei í heimsókn :-) Ég mun að minnsta kosti (ef
af því verður) láta allar snjóbrettaæfingar algjörlega eiga sig og
halda mig við skíðin. En mér eru mjög minnistæðar þessar blessuðu
snjóbrettaæfingar mínar á Siglufirði um síðustu Páska..........
Úffh............. Ætli ég hafi ekki gert ca 50 tilraunir til að
komast upp með “barnalyftunni” án árangurs........... Já, það má
vel vera að ykkur þyki það fyndið ....... og mér þótti það nú
líka til að byrja með, but let me tell you......... ekki í lokin.
Kvaddi sem sagt skíðasvæðið eftir hálfan dag (í pirringskasti) án
þess að hafa náð að renna mér eina einustu ferð...........
Hæfileikar mínir liggja greinilega ekki á
“snjóbrettasviðinu”.......
Svo var ég nú einnig minnt á það í dag hvað ég væri orðin
“gömul”. Fékk bréf frá 70 árgangnum á Siglufirði. Það á víst að
halda 20 ára “gagnfræðiútskriftarafmæli” þar í vor. Úffh........ 20
ára, hvað er maður eiginlega orðinn gamall ?............. og líður
alltaf eins og 25 ! En það furðulega við bréfið var að það var
sérstaklega tekið fram að ég yrði að mæta og að Friðfinnur
stórfrændi minn hefði tekið að sér það hlutverk að tryggja nærveru
mína. Ég er nú farin að halda að það eigi að gera eitthvað grín að
mér................. Hah......... Þetta er í.þ.m. ansi góð leið til
að tryggja að ég mæti, því ég er alveg forvitin að eðlisfari skal
ég segja ykkur........... Svo eru nú Friðfinnur stórfrændi og hans
frú alls ekkert leiðinleg heim að sækja.
»
15.01.2006 15:48:10 / estheraj
Vona að þið hafið átt góða helgi ! Sit hér ásamt afleggjaranum,
hann að læra stærðfræði og ég að skrifa ásamt því að aðstoða hann.
En allur sá tími sem ég eyddi í að hárreita mig yfir stærðfræði á
síðustu önn, með góðum árangri kemur sér heldur betur vel
..... Helgin er annars búin að vera róleg að mestu leyti.
Ekkert varð úr fyrirhuguðum “samráðsfundi” okkar stelpnanna úr
skólanum á föstudagskvöldið því Gróa komst ekki og ég ekki heldur,
því auðvitað þurfti ég að taka þátt í að kveðja Sigga, en hann var
að láta af störfum hjá Industria. Fyrir vikið var ákveðið að fresta
“fundinum” tímabundið. Í staðinn skálaði ég í jarðaberjafreyðivíni
og rauðvíni á skrifstofunni og slóst í för með nokkrum herramönnum
út að borða. Síðan var “skundað” yfir á Vínbarinn í “after dinner
drykki”...... Skemmtileg svona kvöld í hópi eintómra herramanna
............ Rupert sagði okkur frá sínum uppáhaldsdrykk Kampavíns
Mochito....... algjörlega “lethal” að hans sögn og arkaði því
undirrituð beint á barinn til að fá einn slíkan blandaðan. Sem
betur fer ekki fyrir mig heldur hann............... Siggi
deildi með okkur skoðunum sínum á strætókerfinu á
höfuðborgarsvæðinu ásamt fleiri hlutum, en hann er einn af þeim sem
alltaf getur bent á athyglisverð sjónarmið á hinum ýmsu málefnum
............. Peter er þessi týpa sem hlýtur að hafa fæðst
herramaður. Þessi týpa sem manni dettur helst í hug að hafi sagt
þegar hann kom í heiminn “afsakið en má ég aðeins trufla”
.......... Vilhjálmur, nýr í Industria “teaminu”. Hann er
svona þessi “diplo” týpa sem öllum hlýtur að líka vel
við........... Axel (þessi með skemmtilega húmorinn) hafði snætt
með okkur en þurfti síðan að sinna Búlgaranum “okkar” (nýja IT
manninum) sem var víst alveg áttavilltur á hinu “stóra” Íslandi.
Sem sagt ótrúlega skemmtilegur og aðlaðandi hópur karlmanna og
undirritaðri leiddist samveran alls ekki neitt.............
Eftir dvölina á Vínbarnum var rölt yfir á Thorvaldsen þar sem
danshæfileikar okkar fengu að njóta sín......... Þar hitti
ég gamla vini frá Grundarfirði og lenti í skemmtilegum
samræðum m.a. um kajaksiglingar, en í för með þeim var Róbert
Smith nokkur (mikill áhugamaður um sportið), og undirrituð
gerðist nú einu sinni svo fræg að fara á kajaknámskeið
og hefur farið í nokkrar ferðir.
Laugardagurinn var eins og gefur að skilja fremur rólegur.
Kammerat Hörður droppaði í heimsókn á leiðinni úr hesthúsinu, rétt
fyrir kvöldmat og snædd var pizza með afleggjaranum og Nonna vini
hans. Síðan var spilað Trivial fram eftir kvöldi með glæstum
árangri húsmóðurinnar. Einhverjir vildu nú saka hana um svindl, en
þið sem mig þekkið vitið náttúrulega að um slíkt var ALLS EKKI að
ræða.............. Ég meina hvað er gaman að spila ef ekki má
svindla smá..........Hah....?
Jæja, best að kíkja í námsbækur (fylla vinnsluminnið af
fróðleik) og vona að eitthvað af því vistist á "harða disknum"
.....................
Bítlarnir farnir að hljóma úr herbergi afleggjarans en hann
kom heim frá Liverpool með bítlastemminguna alveg á
hreinu....... mér til mikillar ánægju ..........
frábær tónlist !
Lag helgarinnar: There are places I remember .............
....... lag og texti hittir mann bara beint í
hjartastað..........
»
11.01.2006 21:53:10 / estheraj
Í dag (eins og reyndar oft áður),
gaf ég öndunum.............. (og nei, ég er ekkert að grínast í
ykkur). Þarfnast útskýringa, ég veit. Málið er að ég legg bílnum
mínum á bílastæðinu undir ráðhúsinu á daginn og datt það
snjallræði í hug að taka alltaf með mér afgangsbrauð af
heimilinu til að gefa þessum greyjum. Í dag fékk ég það á
tilfinninguna að þær væru farnar að þekkja mig. Ég var varla
mætt á svæðið, hvað þá búin að taka upp brauðið áður en þær komu
aðsvífandi. Þar sem ég sat þarna á hækjum mínum að deila út
brauði hópuðust þær upp á bakkann og ætluðu mig lifandi að eta.
Gengu jafnvel svo langt að reka nefið ofan í pokann sem ég hafði
í kjöltunni. Ef ég
hef einhvern tímann verið hrædd við endur þá var það í
dag............ En þeim er greinilega farið að líka nokkuð vel
við mig og ég slapp því ólöskuð frá þessu öllu saman
J....... eins gott að þær vita
ekki hvað mér þykir “appelsínuönd” góð
....
Skólinn; Athyglisverður tölfræðitími.
Síminn hringdi hjá einum í miðjum fyrirlestri, viðkomandi
greinilega með mjög svo óvenjulegan hringitón því rödd Silvíu
Nóttar glumdi yfir alla stofuna “Halló, svaraðu mér, halló ætlarðu
ekki að svara mér ..... o.s.frv.”, olli miklum hlátri
meðal nemenda og eigandinn eldrauður í framan ætlaði hreinlega að
deyja úr skömm........
Nemandinn í næsta stól við hliðina á
mér eyddi öllum tímanum í sjóð heitar rökræður um DV á MSN, við
sinn heittelskaða. Nefni engin nöfn, en fyrsti stafurinn er
Berglind
J
Og “take my word for
it” hún getur sko alveg orðið mjög áköf í samræðum og hefur sko
alveg skoðanir ....
með stóru S-i. ........ Skemmtilegt svona fólk..........
Manneskjan sem sat hinu megin við mig
stal síðan símanum mínum og fór með hann heim. Nefni aftur engin
nöfn en fyrsti stafurinn er Gróa. Svona er þá þetta fólk sem er í
framboði.................. Ég þurfti sem sagt að gera mér ferð í
Kópavogskjördæmi........ til að nálgast símann. Annars held ég hún
hafi nú bara viljað fá mig í heimsókn til að athuga hvort ég þekkti
ekki einhvern í Kópavoginum sem tryggja mætti atkvæði
frá.
Er heim var komið mætti ég unglingnum
á heimilinu og vinum hans í dyrunum þar sem þeir voru á leiðinni á
“barinn” að sjálfsögðu ekki til að kanna hversu mikill orðaforði er
í einum bjór, heldur til að horfa á
fótboltaleik...............
Well, læt þetta duga í
dag.............
»
10.01.2006 21:24:00 / estheraj
Dagur að kveldi
kominn........
Í dag: Vinnan, skólinn .......... og svo
akstur með unglinginn og vin hans á fótboltaæfingu í Árbænum. Alveg
ótrúlegt að þessar æfingar skuli þurfa að fara fram á íþróttasvæðum
annarra félaga á höfuðborgarsvæðinu. Þetta hlýtur að vera alveg 50%
starf fyrir þá sem eru athafnasamir við ræktun
afleggjara..................
Hrikalega skemmtilegur fyrirlestur í
viðskiptalögfræðinni, í skólanum. Kennarinn greinilega alveg með
fyndnari mönnum og olli fjölmörgum hláturhrinum.
Umræðuefnið var
stjórnskipun, stjórnarfar, dómstólar, réttarfar ofl
........... ég veit, ... hljómar nú ekki mjög fyndið, en náði
þó að verða það í hans umfjöllun .........
Hann getur greinilega einnig verið
hinn mesti orðaböðull líkt og fleiri sem ég þekki, ....... hafiði
t.d. einhvern tímann heyrt um að maður sé “tekinn
handtekinn”........ Nei, ég nefnilega ekki heldur.
En talandi um orðaböðla............
þá hafa nú hinir ýmsu kennarar átt þvílíku gullkornin sem valdið
hafa mér miklum hlátri. Hafið þið einhvern tímann heyrt um
fyrirtæki sem á margar milljónur í banka......... hvernig jónur
skyldu það nú vera ? Eða um einhvern sem er í slökkviliðsliðinu,
eða séð eignalista fyrirtækis sem á stendur “ein hjólbara”.
Já, eða heyrt fólk
segja ég fór þangað “á áðan” ........ Annars er ég nú tæplega yfir alla
gagnrýni hafin hvað málfar varðar. Hin skemmtilega málfarsvilla
(eða þannig) “Mig hlakkar” í stað “Ég hlakka” ætlar nú seint að
eldast af mér.... oo
........ en ÉG hlakka til að takast á
við viðburði morgundagsins og vona að þið gerið það
einnig........
Ps. Í dag var mér sagt að
ég væri “vel tengd”, hvað þýðir það ?
»
09.01.2006 22:05:20 / estheraj
Jæja, þá er enn einn dagur liðinn af
nýju ári. Fyrsta skóladegi ársins lokið hjá báðum
fjölskyldumeðlimum og búið að næra sig.
Þar sem við mæðginin sátum að
snæðingi og spjölluðum um viðburði dagsins barst í tal að
afleggjarinn hafði sofið eitthvað illa um nóttina. Vaknað um
þrjúleytið, ekki getað sofnað aftur og var því hálf þreyttur eftir
skóla og fékk sér smá kríu.
Nú, spurði móðirin. Get ég sem sagt
skrifað á bloggsíðuna að þú hafir verið svo spenntur yfir fyrsta
skóladeginum að þú hafir ekki getað sofið ? Nei, hann hélt nú
aldeilis ekki. Mamma; heldurðu virkilega að 16 ára unglingar séu
svo spenntir yfir skólanum að þeir geti ekki sofið, er ekki í lagi
með þig ? Nú, er það eitthvað svo fráleitt spurði ég, hvað annað
getur þetta s.s. verið ..... og hélt áfram .... Ég náttúrulega hlýt
að skrifa um þetta á bloggsíðuna.
Ef þú gerir það viltu þá allavega
setja broskall eða einhverja fígúru með svo fólk fatti pottþétt að
þetta er grín og haldi ekki að ég sé eitthvað
klikkaður....... (sem sagt, broskallinn fyrir
Hafþór).
Ég komst einnig að því að honum þótti
nýi íþróttakennarinn sinn alveg stórfurðulegur og með fyndnari
mönnum sem hann hefur hitt. Kennarinn hafði sem sagt byrjað á því
að kalla alla inn í sal og tilkynnt nemendum að hann hefði ákveðið
að hefja veturinn á því að kenna þeim íþrótt sem allt of fáir kynnu
að hans mati.
Nemendur komust í kjölfarið að því að
næstu fimm vikurnar yrði spilað BLAK í hverjum einast íþróttatíma.
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort þetta féll í kramið hjá
fótboltabullunni sjálfri. Kennaranum þótti einnig algjörlega
tilefnislaust að vera eitthvað að skipta yfir í íþróttafatnað og
var því spilað blak á gallabuxunum út tímann. Annars hef ég fulla
trú á að honum takist tilætlað verk, þó ekki væri nema sökum
fyndni.......
Þegar hér var komið sögu lauk okkar
samræðustund því heimilið breyttist í félagsmiðstöð og inn streymdu
vinir afleggjarans, síðhærðir unglingar í fótboltaskóm.
Hvað minn dag varðar var hann fínn.
Kynntist fyrsta kennaranum á önninni og líst bara vel á kauða. Hann
var þó með þá mest róandi rödd sem ég hef upplifað á fyrirlestri og
er eins gott að vera ekki þreyttur í mánudagstímum þessa
önninna........... zzzzzzzzzz (sem btw ég ætti nú ekki að vera
eftir þyrnirósarsvefninn mikla í jólafríinu)........
Við stelpurnar
hófum náttúrulega önnin á því að skipuleggja “samráðsfund” n.k.
föstudag á Oliver. Alveg nauðsynlegt að hittast svona
í byrjun annar “bera saman bækur sínar” og skipuleggja
námið................
»
Síður: 1 2
|
|